Árgangur ´82
Klukkan
19.05.2008 22:44:58 / argangur82

halló halló halló

Nú fer hver að verða síðastur að greiða inn á reikninginn!!!!

Erum búnar að liggja í kasti yfir videoklippum af skólaböllum og öðrum skemmtunum :D

Frestur er til 26. maí

Ekki láta þig vanta :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 23:04:15 / argangur82

Bréfið

Kæru árgangsfélagar

Ótrúlegt en satt þá verða komin 10 ár í maí frá því að við sögðum skilið við grunnskólann og héldum út í hinn stóra heim.

Af því tilefni ætlum við að hittast í Breiðholtsskóla laugardaginn 31. maí næstkomandi og eyða einni kvöldstund saman.

Planið lítur þannig út að við mætum upp í skóla (salmegin) kl 17:00. Þar ætlum við að líta á nokkrar úrklippur úr skólagöngu okkar og láta taka árgangs mynd af okkur.

Að því loknu mun leiðin liggja með rútu upp í Skíðaskálann í Hveradölum. Þar verður boðið upp á pinnamat og með því. María Anna hefur ákveðið að fljúga alla leið frá Köben til að leiða hópinn og segja nokkur vel valin orð.

Að sjálfsögðu væri gaman að heyra frá sem flestum svo ef þið hafið frá einhverju skemmtilegu að segja, endilega látið okkur vita.

Áætluð heimferð úr Skíðaskálanum með rútu er á miðnætti og endastopp er á Ölver þar sem við vonum að flestir sjá sér fært að halda stuðinu áfram.
Á Ölver eru makar einnig velkomnir.

Gjaldið fyrir kvöldið er 6000 kr og innifalið í því er:

* myndataka
* rúta fram og til baka
* pinnamatur
* lítilsháttar af áfengi og óáfengu (tilboð verða á barnum fyrir þá sem vilja drekka meira)
* leiga á skálanum og skólanum

Greiðist inn á reikning  313-26-24509  kt:310382-4509  fyrir 3. maí.

Vonumst til að sem flestir sjá sér fært að mæta.

Kveðja Reunionnefndin:)

Bjarni, Elín, Emilía, Guðný, María Anna og Unnur

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 09:42:12 / argangur82

Dagsetningin

Það er greinilegt að yfirburðakosning er 31. maí..  Kannski fleiri sem föttuðu að það er Júróvision þann 24..

Endilega látið vita í commentum ef þið kusuð 24. án þess að vita af Jóróinu, sérstaklega ef það breytir ykkar vali.
 

» 9 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 13:19:28 / argangur82

FYRSTI FUNDUR REUNIONNEFNDARINNAR:)

Þá er fyrsti fundur afstaðinn hjá "nefndinni". Hittumst heima hjá Elínu :) Við reyndum eftir fremsta megni að halda okkur við efnið en duttum alltaf inní sögur og minningar úr skíðaferðalögum, skólanum og fl.  Þetta var nú frekar fyndið að setjast þarna niður með fólki sem maður hittir nánast aldrei í dag en sat þarna bara og spjallaði eins og engin ár hefðu liðið frá því maður gerði það síðast.

Nú er farið í gang súper heimavinna við að gera Reunionið sem skemmtilegast. Hvar á að halda það og hvenær en það koma til greina 2 dagar í lok maí þar sem fólk ætti að vera búið í prófum þeir sem eru í skóla. Gengur víst ekki að ætlast til að fólk mæti í miðri prófatörn.. En endilega verið virk í að kjósa dagsetninguna sem hentar ykkur betur því könnunin gildir aðeins til 5. mars og verður sú dagsetning valin sem fékk flest atkvæði.

Síðasta könnun var um það hvort makar væru boðnir með og niðurstaðan þar var sú að makar eru velkomnir að koma í lok kvöldsins eða eftir okkar dagskrá eins og orðað var í könnuninni.

Eins höfum við ákvieðið að að bjóða því fólki sem var með okkur í skóla 8. 9. eða í 10. bekk og einnig þeim sem eru úr okkar árgangi en skiptu um skóla fyrir þann tíma.  Það ætti bara að vera gaman að hitta það fólk sem hefur áhuga á að mæta :)

Endilega verið dugleg að tjá ykkur í commentum.

kv, Nefndin (Bjarni, Elín, Emilía, Guðný og Unnur) 

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 17:17:37 / argangur82

Reunion

Svo virðist sem flestir vilja hittast í Mai. Þá verða líka akkúrat 10 ár síðan mörg okkar hittust síðast:)..

 Eins hef ég fengið comment frá þeim sem búa ekki á landinu kalda að þau eiga auðveldara að með að koma ef það verður haldið í mai.

 Þar með er þessi skoðana könnun úti og farið verður á fullt í undirbúning eftir áramót:) svo hægt verði að hafa þetta sem skemmtilegast í maí.:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 13:09:37 / argangur82

MYNDIR

LOksins!

 

Komnar inn nokkrar

 

myndir frá Elínu og

 

svo fann Einsi eina

 

mynd sem ég skellti

 

inná!!!

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 22:52:19 / argangur82

Whoopah!!

Gaman að sjá hvað margir hafa tekið þátt:) Efast um að fólk viti almennt af þessari síðu nema þeir sem eru aðgengilegir á netinu;)

Ennnnn HVER VILL VERA MEÐ Í REUNION NEFND!!!!!!

Langar svolítið að við verðum nokkur sem gerum þetta saman. Alltaf betra að hafa fleiri álit svo við getum gert þetta skemmtilegra:)

Jæja hver er með?


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 08:39:26 / argangur82

Myndir

Planið er svo að grafa upp gamlar myndir og skella þeim inn á síðuna. Ég á sjálf nokkrar en það væri gaman að fá sendar myndir frá öðrum líka ;)...

En svona til gamans... smá kynning.. ALLIR AÐ VERA MEÐ!8|8|

Nafn?

fjölskylda?

nám/vinna?

Áhugamál?

Hvar býrðu?

 

 


» 39 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 15:59:45 / argangur82

Bekkjarlistar

Nú fer að líða að því að 10 ár!!! séu liðin frá því að við árgangur ´82 útskrifuðust úr Breiðholtsskóla. Hver trúir því að það eru að verða komin jafn mörg ár frá því að við hættum og öll þau ár sem við vorum í grunnskóla!.. Ekki ég allavena, tíminn er alltof fljótur að líða.

Hef tekið eftir því að þegar á að halda svona reunion að ekki tekst að hafa uppi á öllum svo mér fannst bara sniðugt að taka smá tíma í þetta svo örugglega allir koma til með að vita af fyrirhuguðu reunioni:D Ég átti leið hjá gamla skólanum í dag og fékk þar nafnalistann með þeim sem útskrifuðust ´98.

Þeir sem eiga nafn á þessum lista mega endilega senda mér upplýsingar um heimilisfang á hitmeup@visir.is svo bréfið sem verður sent til ykkar seinna meir rati örugglega á réttan stað:D Ég kem svo til með að merkja við á listunum hér til vinstri hverjir hafa skilað inn upplýsingum um sig.

kv, Emilía

 

10. A

Atli Rúnar Guðbjörnsson

Ásdís Erla Erlingsdóttir

Berglind Unnur Gunnarsdóttir

Birgir H. Hallgrímsson 

Bjarni R. Heimisson

Daði Rafn Skúlason

Daníel Freyr Kristínarson

Davíð Ágústsson

Elías Sigurðsson

Emilía Lilja

Guðný Lára Óskarsdóttir

Hafdís Svala Einarsdóttir

Hugrún Svala Heiðarsdóttir 

Jóhann Fannar Óskarsson

Kjartan Daníel Haraldsson

Magnús Mikaelsson

María Anna Önnudóttir

María Salóme Bjarkan

Róbert Árni Sigþórsson

Sigurbjörg Unnur Árnadóttir

Sigurbjörn Ingi Sigurðsson

Þorleifur Árni Björnsson

 

10. B

Ágúst Ingvar Magnússon

Árni Þorgrímur Kristjánsson

Benjamín A. Hallbjörnsson

Daníel Örn Davíðsson

Einar Friðrik Hólmgeirsson

Elín Dögg Ómarsdóttir

Erla Dröfn Rúnarsdóttir

Erlendur Egilsson

Eva Rún Snorradóttir

Gunnar Þór Jónsson

Gunnar Örn Heimisson

Halla María Ólafsdóttir

Hannes Arnórsson

Helga Ósk Hreinsdóttir

Hrund Jóhannsdóttir

Kolbrún Ívarsdóttir

Lilja Þorsteinsdóttir

Magnús Már Guðmundsson

Marlín Aldís Stefánsdóttir

Sigurjón Már Gunnarsson

Sara Skúlína Jósndóttir

Steinar Indriðason

Tómas Björn Samúelsson

Þorgerður Lilja Björnsdóttir

Starfsdeild

Betaný Rós Samúelsdóttir

Henry Aclipen

Kristinn Guðbjartsson

Rúna Lind Jóhannsdóttir

Eyjólfur Kristjánsson

 

Þessi nöfn vöru á listunum en endilega látið mig vita ef einhver er að gleymast ;)

commenta svo:lol:


» 6 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Könnun
Ætlar þú að mæta
21 atkvæði

Nei
8 atkvæði

Kannski
17 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 46